Áskorun til stjórnvalda - 1. des við sendiráðið kl. 15
Óskir námsmanna eru eftirfarandi:
1. Að hlúð verði áfram að menntakerfi þjóðarinnar og að þjónustustig háskóla og gæði kennslu verði ekki skert þegar aukinn fjöldi námsmanna sækir nám sitt þangað.
2. Að þjónustustig Lánasjóðs íslenskra námsmanna verði ekki skert og að sjóðurinn haldi áfram að tryggja framfærslu námsmanna á meðan á námi stendur skv. 1. grein laga um LÍN.
3. Að mánaðarlegar greiðslur verði teknar upp á vegum LÍN til þess að stúdentar þurfi ekki að fá yfirdráttarlán frá bönkunum á tæplega 20% vöxtum fyrir eftirágreiddu láni úr sjóðnum.
4. Að ríkið og LÍN endurskoði grunnframfærslu og reikni hana út miðað við raunverulegt verðlag nauðþurfta í þjóðfélaginu. Núverandi grunnframfærsla LÍN er ekki nægilega há til að stúdentar geti séð sér farborða með henni einni saman. Þeir hafa þurft að vinna með námi og leggja fyrir sumarlaun til að ná endum saman. Kúvending á vinnumarkaði hefur gjörbreytt tekjumöguleikum stúdenta með námi og að sumri sem nauðsynlegt er að bregðast við.
5. Að háskólar á landinu taki upp námskeið og kennslu yfir sumartímann fyrir þá stúdenta sem fá ekki vinnu. Að öðrum kostum neyðast atvinnulausir stúdentar til þess að sækja um atvinnuleysisbætur frá ríkinu.
6. Að efla og styrkja Nýsköpunarsjóð námsmanna og sporna þannig við auknu atvinnuleysi og ýta undir framtakssemi námsmanna.
7. Að ríkisstjórn og sveitarfélög styðji rækilega við uppbyggingu nýrra stúdentagarða og efni þá samninga sem þegar hafa verið undirritaðir. Fleiri hundruð stúdenta bíða eftir stúdentahúsnæði og þeim mun fjölga þar sem æ fleiri námsmenn sjá fram á mikla fjárhags- og greiðsluörðugleika.
8. Að stjórnvöld taki höndum saman við aðra Íslendinga við að byggja upp samfélag grundvallað á þekkingu, jafnrétti, félagslegu réttlæti og manngildi.
Námsmannahreyfingarnar sem að þessu standa auk FÍSN eru:
Stúdentaráð Háskóla
Íslands, Stúdentaráð Háskólans í Reykjavík, Stúdentaráð Menntavísindasviðs,
Félag stúdenta við Háskólann á Akureyri, Listaháskóli Íslands, Stúdentafélag
Háskólans á Hólum, Samband íslenskra námsmanna erlendis, Samband íslenskra
framhaldsskólanema og Hagsmunafélag íslenskra framhaldsskólanema. Fyrir utan
sameiginlegar kröfur námsmanna leggur Félag íslenskra námsmanna í Osló og
nágrenni (FÍSN) sérstaka áherslu á eftirfarandi: - Að stjórnvöld sjái sóma sinn í
að viðurkenna sína ábyrgð á atburðarásinni sem varð til þess að fjármálakerfi
Íslands hrundi með þessum hrikalegu afleiðingum sem nú eru að verða ljós og er
mikilvægt að heiðarleiki og hreinskilni ríki við uppgjör mála. Við teljum það
grundvallaratriði í að endurreisa trúverðugleika þjóðarinnar út á við og trú
ungs fólks á lýðræðinu.
