Ísl - Nor


FÍSN

Félag Íslenskra Námsmanna í Ósló og Nágrenni (FÍSN) eru hagsmunasamtök stúdenta. Aðalmarkmið FÍSN er að gæta hagsmuna félagsmanna, efla samheldni þeirra og félagslíf. FÍSN hefur aðstöðu í Guðrúnarstofu þar sem stúdentar og aðrir velunnarar félagsins hittast. í Guðrúnarstofu er eitt stærsta íslenska bókasafn í Ósló. Hægt er að fá stofuna lánaða fyrir hverskonar tækifæri, fundi eða veisluhöld.

Félag íslenskra námsmanna í Ósló og nágrenni (FÍSN)
S5104
Rolf. E. Stenersens allé 28
N-0858 Oslo

Sími formanns: 00 47 48608418 - Bergþóra Hallbjörnsdóttir

Partý partý

23. janúar 2008 klukkan 22:20
Í tilefni þess að margir meðlimir í físn hafa átt afmæli í janúar, ætlum við að halda  smá teiti nú á föstudagskvöldið. Vonast til að sjá sem flesta káta físnara í sötur fíling og með góða skapið. Vona að sem flestir hafi tíma til að líta upp úr skólabókunum og mæta í Guðrúnarstofu frá og með klukkan 8. Endilega látið vita hvernig það hentar ykkur og hvort þið munið mæta.

Hilsen
Ingi Þór
Félag íslenskra námsmanna í Osló

Þorrablótið 2. febrúar.

21. janúar 2008 klukkan 22:54

Íslendingafélagið ætlar að leyfa okkur námsmönnum að njóta sömu kjara og þeirra félagsmenn  þegar kemur að miðaverði á Þorrablótið.
Verð fyrir FÍSNARA er þar með 400 NOK á borðhald, skemmtiatriði og ball.
Það verður ekki í boði að koma einungis á ballið.

Allar nánari upplýsingar um greiðslufyrirkomulag og dagskrá o.s.frv. eru á heimasíðu Íslendingafélagsins;

Frestur til að panta og greiða miða er til 26. Januar.

Bara muna að taka fram við skráningu að þið séuð félagsmenn í FÍSN.
Þeir sem ætla, endilega kommentið. 

Áfram Ísland
Jakob Einar



Félag íslenskra námsmanna í Osló

EM

16. janúar 2008 klukkan 13:49
Hæ er einhver sem ætlar ad horfa a leikinn a morgun ??

veit einhver hvar hann er syndur ??

væri gaman ad hittast og safna upp sma stemmingu. Erum med 3 utsendara a vellinum sjalfum. Sollu, Jakob og Kidda :)
Félag íslenskra námsmanna í Osló

Stuttur fyrirvari

08. janúar 2008 klukkan 17:18
Gegnum Handknattleikssamband Íslands gefst okkur kostur á að fá ódýrari miða á EM í handbolta. Fyrstu 3 leikirnir eru í Þrándheimi 17-20 janúar 2008.

Ef félagsmenn hafa hug á þessu hafið þá samband við undirritaðan fyrir klukkan 13.00 þann 9. janúar, þar sem kemur fram hvaða leiki þið viljið sjá og hve marga miða þið þurfið. Ég sendi svo sameiginlega pöntun til HSÍ.
Verðið fyrir daginn er ca. 300 NOK

Kv. Jakob Einar
jakobeinar@hotmail.com
tel: 97685612
Félag íslenskra námsmanna í Osló

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Námsmenn ATH!

Allir þeir sem mögulega hafa áhuga á að mæta á viðburði félagsins geta skráð sig með því að smella á hlekkinn "skrá sig hér" í dálknum fyrir neðan!

Villtur eða villt?

Ertu ný(r) í bænum og ratar ekki neitt? Trafikanten er með síðu sem að leysir öll vandamál hvað það varðar. Smelltu á hlekkinn hér fyrir neðan og þú munt komast að því að Osló er engin stórborg eftir allt.

Innskráningar kubbur