Ísl - Nor


FÍSN

Félag Íslenskra Námsmanna í Ósló og Nágrenni (FÍSN) eru hagsmunasamtök stúdenta. Aðalmarkmið FÍSN er að gæta hagsmuna félagsmanna, efla samheldni þeirra og félagslíf. FÍSN hefur aðstöðu í Guðrúnarstofu þar sem stúdentar og aðrir velunnarar félagsins hittast. í Guðrúnarstofu er eitt stærsta íslenska bókasafn í Ósló. Hægt er að fá stofuna lánaða fyrir hverskonar tækifæri, fundi eða veisluhöld.

Félag íslenskra námsmanna í Ósló og nágrenni (FÍSN)
S5104
Rolf. E. Stenersens allé 28
N-0858 Oslo

Sími formanns: 00 47 48608418 - Bergþóra Hallbjörnsdóttir

Aukaaðalfundur

23. október 2007 klukkan 15:38
Kæru samlandar og aðrir velunnarar.

Óskar formaðurinn knái kom að máli við mig og féllumst við á eftirfarandi:

Aukaaðalfundur verður haldinn á Guðrúnarstofu föstudaginn 26. 10. 2007. 
Fundartími er klukkan 20:00

Vonandi að sem flestir sjái sér fært að mæta og leggja sitt af mörkum svo úr megi verða hamingjuríkasti vetur félagsmanna frá upphafi.
Eða ekki? Þið ráðið!

Kveðja, Jakob Einar.


Félag íslenskra námsmanna í Osló

Teiti hjá Guðrúnu.

17. október 2007 klukkan 17:58

Biðlund mín er á enda!

 

Núna komandi föstudag 19. okt er stefnt á partý í Guðrúnarstofu. Planið er að hittast um klukkan 20:00, og hefur því verið varpað fram að stefnan sé tekin út á lífið þegar líða fer á kvöldið. 

Því miður eru margir staddir erlendis (Kiddi, Bergþóra og Thelma sem ég veit um) en í staðinn er Helga Sigríður komin tilbaka úr slátúrhúsinu, og Sigga Svana kominn með hann Jón(n) sinn í heimsókn og ætla þau að vera með skemmtiatriði.

 

Annars legg ég til að næsti hittingur verði haldinn með lengri fyrirvara og þegar sem flestir eru í Oslo, og að þá verði hægt að pota eins og einum "aukaaðalfundi" (þessi sem átti að vera 28. septmeber s.l) inní á milli atriða. Þarf að fara að setja dagsetningu á skíðaferðina svo hún endi ekki eins og í fyrra, dýr og langt í burtu. 

Mig er farið að langa í aðra fermingarveislu eins og þessi sem var í fyrra.  

 

Hvað segiði?

 

Jakob E.

Félag íslenskra námsmanna í Osló

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Námsmenn ATH!

Allir þeir sem mögulega hafa áhuga á að mæta á viðburði félagsins geta skráð sig með því að smella á hlekkinn "skrá sig hér" í dálknum fyrir neðan!

Villtur eða villt?

Ertu ný(r) í bænum og ratar ekki neitt? Trafikanten er með síðu sem að leysir öll vandamál hvað það varðar. Smelltu á hlekkinn hér fyrir neðan og þú munt komast að því að Osló er engin stórborg eftir allt.

Innskráningar kubbur